Í sumar munu fjórir nemendur Listdansskólans gleðja borgarbúa með dansi víðsvegar um borgina okkar.
Dansandi drengir eins og þeir kalla sig eru Karl Friðrik Hjaltason, Kolbeinn Ingi Björnsson, Sveinn Breki Hróbjartsson og Viktor Már Leifsson allt nemendur á fyrsta ári framhaldsdeildar. Þeir sóttu um hjá "Skapandi sumarstörfum" á vegum Íþrótta og tómstundaráðs Reykjavíkur og munu í sumar hafa atvinnu af því að semja og sýna dansverk. Lesa meira...
Ellen gerði sér lítið fyrir og lenti í 3ja sæti keppninnar en hún dansaði tvo sólóa í keppninni úr Coppeliu og Le Corsair. Eftir því sem vefstjóri best veit er þetta besti árangur íslendings í þessari keppni til þessa. Að vanda var Birgitte Heide keppendum til halds og trausts úti en hún hefur haft yfirumsjón með æfingum fyrir keppnina.