Vorsýningarnar 1. maí heppnuðust mjög vel. Við þökkum öllum þeim fjölmörgu sem hafa haft samband við okkur og lýst ánægju sinni með sýningarnar.
Vorsýningarnar 1. maí heppnuðust mjög vel. Við þökkum öllum þeim fjölmörgu sem hafa haft samband við okkur og lýst ánægju sinni með sýningarnar.
Allir nemendur skólans fá 1 boðsmiða á nemendasýninguna 1. maí.Sýningar verða kl. 17:00 og 20:00Staðfesta þarf í miðasölu Borgarleikhússins í síma: 568-8000Miðasala á sýninguna er hafin. Miðaverð:kr. 2000 fyrir fullorðnakr. 1000 fyrir börn undir 12 áraPanta þarf í miðasölu Borgarleikhússins.
Sýningin 17 apríl í nýju tónlistarhöllinni í Turku í Finnlandi sem Halla Þórðardóttir, Hjördís Gestsdóttir, Hildur Ólafsdóttir og Ólöf Gunnarsdóttir, nemendur á lokaári í klassískum dansi tóku þátt í, tókst með miklum ágætum. Gestakennari skólans Elli Laukkanen samdi og æfði verkið fyrir hópinn meðan hún var stödd hér á landi frá 4. jan. – 31. mars s.l.. Þetta er í fyrsta skipti sem stelpurnar dansa við frumsamið verk leikið af hljómsveit. Lesa meira...
Inntökupróf í allar deildir skólans verða haldin á næstunni. Athugið tíma hér að neðan.Allar nánari upplýsingar er hægt að fá í síma 588 91 88.Framhaldsskóladeild (nemar fæddir 1991):Laugardaginn 14. apríl, kl. 13:00 – 15:30Grunnskóladeild (nemar fæddir 1998):Laugardaginn 12. maí, kl. 14:00 - 15:00Forskóladeild (nemar fæddir 1999 - 2002):Skráning frá 7. til 31. maí, virka daga milli kl. 13:00 og 17:00 í síma 588 91 88Nemar fæddir önnur ár eru beðnir að hafa samband við skrifstofuna ef þeir hafa áhuga á að sækja um nám við Listdansskólann.
Nú er komin í loftið ný og glæsileg vefsíða fyrir Listdansskólann.Síðasta haust tók við ný stjórn Listdansskólans og í framhaldi af því var ákveðið að hressa upp á ímynd skólans og búa til nýtt merki og útlit fyrir skólann. Þó að nýja merkið sé nú þegar komið upp og hefur verið hér á for-síðunni okkar í einhvern tíma má segja að við séum að frumsýna það hér og nú ásamt nýrri vefsíðu.Við erum búin að setja töluvert af efni inn á síðuna og erum enn að bæta við. Lesa meira...