Fréttir

21/04/2010 FRÍ Í SPUNA HJÁ 2.STIGI LAUGARDAGINN 24.APRÍL

Laugardaginn 24.apríl verður opið hús í Listdansskóla Íslands og vegna framkvæmdar á því verðum við að gefa 2. stigi frí í spuna hjá Mumma 12:30-13:30

Næsti laugardagur lendir svo á 1.maí svo það verður einnig frí þá. Næsti spunatími verður 8.maí :)

19/04/2010 Listdansskólinn á Barnamenningarhátíð

Í tilefni Barnamenningarhátíðar verður opið hús í Listdansskóla Íslands laugardaginn 24.apríl þar sem fólki bæði gefst tækifæri til þess að horfa á tíma og taka þátt í tímum hjá kennurum skólans.

Nánar má lesa um hátíðina með því að smella hérna

14/04/2010 INNTÖKUPRÓF FYRIR SKÓLAÁRIÐ 2010-11

 

LISTDANSSKÓLI ÍSLANDS
GÆÐI, ÞEKKING, REYNSLA

RAFRÆN SKRÁNING HAFIN FYRIR NÆSTA SKÓLAÁR 2010- 2011
INNTÖKUPRÓF  8. MAÍ 2010

   Lesa meira...

04/04/2010 PÁSKAFRÍ

Listdansskóli Íslands óskar öllum nemendum og aðstandendum gleðilegra páska og minnir á að kennsla hefst aftur að loknu páskafríi mánudaginn 12.apríl samkvæmt stundaskrá.

23/03/2010 NEMENDASÝNING LISTDANSSKÓLANS

Listdansskóli Íslands heldur sína árlegu vorsýningu  miðvikudaginn 31. mars á Stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu.  

Sýningarnar verða tvær, sú fyrri kl. 17:00, en seinni sýningin kl. 20:00.  Allir nemendur skólans koma fram á sýningunum.

Á efnisskrá verður klassíska dansverkið  Paquita eftir Marius Petipa,  þrjú stutt frumsamin nútímadansverk eftir kennara skólans þá Cameron Corbett, Guðmund Helgason og Gunnlaug Egilsson,  Karnival dýranna við tónlist eftir franska tónskáldið Camille Saint-Saëns og Revelations eftir Alvin Ailey.  Lesa meira...

8/3/2010 KLASSÍSKT DISKÓ...

Í gær dönsuðu 3 nemendur úr K-1 á tónleikum í Salnum í Kópavogi.  Þetta voru svokallaðir Töfrahurðartónleikar sem eru ætlaðir til þess að kynna klassíska tónlist fyrir ungum áhorfendum.  Í þetta sinn var yfirskriftin klassískt diskótek og spunnu þau Birta Hildardóttir, Karl Friðrik Hjaltason og Sigríður Ólöf Valdimarsdóttir dans á staðnum við tónlistina...

Karl, Birta og Sigríður Sigríður og Karl

6/3/2010 NEMENDUR AÐ SÝNA UM HELGINA...

Sunnudaginn 7.mars munu nokkrir nemendur Listdansskólans dansa á tveimur sýningum hérna á höfuðborgarsvæðinu.  Klukkan 13 verða nemendur að dansa á "Klassísku diskóteki" í Salnum í Kópavogi sýningin er hluti af barnatónleikaröðinni "Töfrahurð" og klukkan 15 stíga "sjóararnir" á svið í Sjóminjasafninu Víkinni.

1/3/2010 BREYTTUR TÍMI FYRIR STYTTRA KOMNA Á NÁMSSKEIÐI

Búið er að breyta tímanum á sumarnámsskeiði Stephen Sheriffs fyrir styttra komna 16 ára og eldri og verður það núna klukkan 18-19:30

RAFRÆN SKRÁNING HÉRNA

24/02/2010 NEMENDASÝNING LISTDANSSKÓLA ÍSLANDS

Þá hefur verið ákveðið að nemendasýning Listdansskólans verður 31.mars (miðvikudag fyrir páska) væntanlega klukkan 17 og svo aftur klukkan 20.

Sýnt verður á stóra sviði Borgarleikhússins og má segja að vegleg sýning sé í vændum.  Nemendur mega gera ráð fyrir einhverjum samæfingum laugardagana á undan og eins mánudaginn 29.mars - 30.mars verða æfingar á sviði í Borgarleikhúsinu - nánari tímasetningar koma í ljós þegar nær dregur.

23/02/2010 NÝ MYNDASÍÐA FYRIR LISTDANSSKÓLA ÍSLANDS

Jæja - þá er loksins komin í gagnið myndasíða með ljósmyndum frá sýningum skólans núna fyrir jólin. Myndirnar tók Valgarður Gíslason 

Hérna má finna skyggnusýningu með myndum frá sýningu grunnskóladeildar 
OG 
Hérna er skyggnusýning með myndum frá sýningu framhaldsdeildar 

annars er tengillinn http://flickr.com/photos/listdans

Syndicate content