Þá er rafræna skráningin okkar fyrir sumarnámsskeið með Stephen Sheriff komin í gagnið - veljið Sumarnámsskeið af listanum hérna til hægri til þess að fá skráningarblaðið upp...
EÐA smellið á myndina hér að neðan...
Þá er rafræna skráningin okkar fyrir sumarnámsskeið með Stephen Sheriff komin í gagnið - veljið Sumarnámsskeið af listanum hérna til hægri til þess að fá skráningarblaðið upp...
EÐA smellið á myndina hér að neðan...
Að kvöldi öskudags 17.febrúar fór fram íslensk undankeppni fyrir Stora Daldansen -norræna ballettkeppni sem haldin er í Svíþjóð í maí ár hvert. Keppnin hér heima er skipulögð af Félagi íslenskra listdansara (FÍLD) og tóku 25 nemendur þriggja ballettskóla þátt. Það er óhætt að segja að okkar nemendur stóðu sig mjög vel og tóku öll fimm sætin sem veitt voru. Keppnin var mjög jöfn og spennandi og til dæmis munaði einungis einu stigi á fyrsta og öðru sæti. Þrjú efstu sætin munu svo fara til Svíþjóðar í maí og keppa fyrir Íslands hönd með tvo sólóa hvert. Fjórða og fimmta sæti eru til vara ef eitthvað kemur uppá hjá þeim þremur efstu.
Auk verðlauna frá FÍLD fengu þrjú efstu sætin peningastyrk úr Minningarsjóði Svandísar Þulu en til þess sjóðs var stofnað í minningu ungrar stúlku sem stundaði ballettnám áður en hún lést í bílslysi. Við óskum öllum keppendum og kennurum/þjálfurum þeirra til hamingju með árangurinn með ósk um góðan árangur í Svíþjóð í vor.
Tveir strákar af nútímabraut framhaldsdeildar þeir Oddur Júlíusson og Viktor Már Leifsson stigu í dag sunnudag á stokk í Sjóminjasafninu Víkinni og dönsuðu tvo sjómannadansa sem Guðmundur Helgason hefur samið. Þetta er sýning á vegum Leikminjasafns Íslands og er viðfangsefnið "Leiklistin og hafið" en þar er leikið sungið og dansað að sjómannasið... Næstu sýningar eru sunnudagana 28. febrúar og 7.mars klukkan 15.

Nú eru elstu nemendur Listdansskóla Íslands á fullu við að æfa sólóana sína fyrir Íslensku undankeppnina fyrir Stora Daldansen.
Birgitte Heide hefur yfirumsjón með æfingum innan skólans en auk hennar koma margir kennarar skólans að þjálfun fyrir keppnina.
Íslenska undankeppnin verður haldin að kvöldi 17.febrúar næstkomandi í Íslensku Óperunni en aðalkeppnin sjálf Stora Daldansen verður svo haldin 13-15. maí 2010 í Falun í Svíþjóð (Hingað til hefur keppnin verið haldin í Mora en flyst þetta árið til Falun) Lesa meira...
Dagana 18.-29.janúar mun Riku Lehtopolku frá Finnlandi koma og kenna við skólann. Hann hefur mikla reynslu þrátt fyrir ungann aldur og mun kenna marga tíma meðan á dvöl hans stendur. Nemendur eru hvattir til að skoða töfluna góðu með upplýsingum um hvenær Riku kennir.
Koma Riku til Íslands er styrkt af Kulturkontakt NORD
![]()
Við viljum minna nemendur framhaldsdeildar á að Pilates tímarnir hefjast 25.janúar næstkomandi og falla niður fram að þeim tíma...
Sunnudaginn 17. janúar næstkomandi munu nemendur á fjórða stigi Listdansskóla Íslands dansa á Töfrahurðartónleikum í Salnum í Kópavogi. Þetta eru dýrin í frumskóginum sem við sáum á jólasýningu Listdansskólans núna í desember síðastliðnum.

Tónleikarnir eru aðrir tónleikarnir í vetur sem nemendur okkar dansa á en draugarnir sem sáust á jólasýningunni dönsuðu í byrjun nóvember á Töfrahurðartónleikum Lesa meira...
Eftirfarandi bréf var sent á alla nemendur framhaldsdeildar: Lesa meira...
Við minnum alla á sýninguna Kossageit sem sýnd verður í Hafnarfjarðarleikhúsinu í kvöld 22.nóvember klukkan 21.
Á sýningunni verður verkið Kossageit sem er afrakstur project tíma 3ja og 4ða árs nema við skólann núna í haust undir handleiðslu Unnar Elísabetar Gunnarsdóttur. Á sýningunni verða einnig sýnd tvö stutt verk sem eru lokaverkefni í Danssmíði tímum 3ja árs.
Allir að mæta á spennandi sýningu :)