Fréttir

16/11/09 NEMENDUR 7.STIGS SÝNA Í GERÐUBERGI

Guðrún, Indý, Ingileif og SigríðurSunnudaginn 15.nóvember sýndu fjórir nemendur 7.stigs Listdansskóla Íslands kínverskan dans úr Hnotubrjótnum í menningarmiðstöðinni Gerðubergi í Breiðholtinu. Sýningin var hluti af fjölskylduskemmtun sem Tóney stóð fyrir og stóðu stelpurnar sig mjög vel - LÍ óskar þeim til hamingju með sýninguna.

15/11/09 GUNNHILDUR VINNUR FYRSTU VERÐLAUN Í PÍANÓKEPPNI

Gunnhildur EvaÞað hefur lengi verið vitað að nemendum Listdansskólans er margt til lista lagt og stunda margir annað nám og tómstundir meðfram námi við okkar skóla.  Gunnhildur Eva Gunnarsdóttir á fyrsta ári framhaldsdeildar klassískri braut er ein þeirra og hefur hún lagt stund á píanónám meðfram listdansnáminu.  Dagana 4.-8. nóvember var haldin píanókeppni í Salnum í Kópavogi á vegum Íslandsdeildar EPTA -Evrópusambands píanókennara og gerði Gunnhildur sér lítið fyrir og vann keppnina í aldurflokki 18.ára og yngri.  Lesa meira...

08/11/09 NEMENDUR LISTDANSSKÓLANS KOMA FRAM VIÐ ÝMIS TÆKIFÆRI

Þessa dagana eru nemendur Listdansskólans að sýna víðsvegar um borgina.

Draugar í Salnum Kópavogi

Síðustu helgi dönsuðu nemendur af 5.stigi Draugadans eftir Guðmund Helgason við tónlist eftir Beethoven á svokölluðum "Töfrahurðartónleikum" í Salnum í Kópavogi.  Tónleikarnir voru hluti af tónleikaröðinni "Töfrahurðin" sem eru ætlaðir til að kynna börnum klassíska tónlist.  Sýningin gekk mjög vel hjá þeim og geta þeir sem misstu af tónleikunum séð dansinn þeirra á jólasýningu Grunnskóladeildar 9.desember n.k.

 

 

3ja&4ða árs nemar í Borgarleikhúsinu

Þá dönsuðu í dag nemendur á 3. og 4. ári framhaldsdeildar á Unglist-menningarhátið ungs fólks í Borgarleikhúsinu. Á sýningunni komu fram nemendur frá 10 dansskólum í borginni með allskonar mjög ólík atriði.  Okkar nemendur voru þeir einu sem höfðu samið sitt atriði sjálf önnur atriði voru samin að kennurum viðkomandi skóla.  Stelpurnar stóðu sig mjög vel og uppskáru mjög gott klapp og viðtökur frá áhorfendum.  Það er greinilegt að skapandi starf innan skólans er í miklum blóma en það sem þær sýndu í dag er hluti af stærra verki sem þær hafa verið að vinna að í Project tíma í vetur undir handleiðslu Unnar Elísabetar Gunnarsdóttur.  Verkið í heild sinni verður svo sýnt í Harfnarfjarðarleikhúsinu í lok nóvember ásamt tveimur Danssmíði verkefnum.  Fylgist með hérna varðandi upplýsingar um sýningartíma og svo framvegis.  Lesa meira...

01/11/09 PRÓFTAFLA GRUNNSKÓLA

Próf í grunnskóladeild eru sem hér segir:

Miðvikudagur 18.nóv
6. & 7.stig   kl. 15:30 (Brian - modern)
2.stig  kl. 17:30 (Helena - ballett)
4.stig  kl. 18:30 (Helena - ballett)

Fimmtudagur 19.nóv
7.stig  kl. 17:30  (Brad - ballett) ATH LHÍ Sölvhólsgötu

Föstudagur  20.nóv
5.stig  kl. 15:00  (Margrét - ballett) 
6.stig  kl. 17:00  (Margrét - ballett)

Laugardagur 21.nóv
3.stig  kl. 10:00 (Helena - ballett) 
1.stig  kl. 11:30 (Ingibjörg - ballett)

26/10/09 PRÓFTAFLA FRAMHALDSDEILDAR

PRÓF Í FRAMHALDSDEILD ERU SEM HÉR SEGIR:

Mánudagur 26.október
N2 - KLA 312,  klukkan 13-14:30
K1-N1  NTD-Release, klukkan 18:30-20

Þriðjudagur 27.október
K2-N2 NTD-Release, klukkan 14:30-16
K1  KLA 103, klukkan 16:50-18:45
K1-N1 Djass, klukkan 19-20

Miðvikudagur 28.október
K2-N2  NTD-Graham, klukkan 17-18:30  Lesa meira...

23/09/09 VINNUBÚÐIR 3ja ÁRS...

Helgina 17-18 október næstkomandi munu nemendur á 3ja ári fara í vinnubúðir á Brún í Borgarfirði. Ferðin er liður í undirbúningi krakkanna fyrir Unglist -Listahátíð ungs fólks, en þau munu koma þar fram með sitt atriði ásamt fulltrúum annara dansskóla hér í borginni.  Í ár verður hátíðin haldin 6.-14.nóvember með ýmsum fjölbreytilegum listviðburðum.

23/09/09 DAGSETNINGAR ÁKVEÐNAR FYRIR JÓLASÝNINGAR

Nú hafa verið ákveðnar dagsetningar fyrir jólasýningar grunn- og framhaldsdeildar þetta árið

Framhaldsdeildin ríður á vaðið með sína sýningu í Þjóðleikhúsinu þann 30.nóvember sem er mánudagur.

Grunnskóladeildin verður svo með sína sýningu miðvikudaginn 9.desember í Íslensku Óperunni.
Nánari tímasetningar verða auglýstar þegar nær dregur sýningum...

Sumir hópar eru þegar farnir að huga að æfingum fyrir sýningarnar og munu þær eflaust verða mjög glæsilegar að vanda.  Foreldrar, vinir og vandamenn eru því hvattir til að taka frá þessar dagsetningar svo þið komist til að njóta afraksturs haustannarinnar með okkur :)

16/09/09 RISTIN NEMENDAFÉLAG

Stofnað hefur verið nemendafélag framhaldsdeildar Listdansskóla Íslands og kallast það því ballettlega nafni Ristin.

Formaður Nemendafélagsins er Eygló Ásta Þorgeirsdóttir 3.ári en auk hennar sitja í stjórn Maja Jóhannsdóttir fyrir 2.ár auk Sigríðar Ólöfar Valdimarsdóttur og Magnúsar Arnar Sigurðssonar fyrir 1.ár.  Hlutverk nemendafélagsins er að efla félagslíf innan skólans og standa fyrir ýmsum uppákomum nemendum til fróðleiks og skemmtunar. Þeir nemendur sem eru á FACEBOOK geta fundið RISTINA HÉRNA

26/08/09 ENGIN FORSKÓLADEILD Í VETUR

Vegna efnahagsástandsins sjáum við okkur ekki fært að bjóða uppá kennslu í forskóladeild í vetur. Við viljum hinsvegar hvetja alla áhugasama um að koma til okkar þegar þau hafa aldur til, inná fyrsta stig við 9 ára aldur. 

20/8/09 PRUFUTÍMAR FYRIR GRUNNSKÓLANEMENDUR

Allir strákar og stelpur fædd árið 2000 eru velkomin í prufutíma fram til 19.september 2009

Tímar eru:

Þriðjudaga kl. 16:30
Fimmtudaga kl. 17:00
Laugardaga kl. 11:30

Kennt er að Engjateigi 1 í Reykjavík

Kennarar 2009-10 

Syndicate content