Fréttir

06/08/09 LÁRA STEFÁNSDÓTTIR TEKIN VIÐ SEM SKÓLASTJÓRI LISTDANSSKÓLANS

Lára Stefánsdóttir, skólastjóriLára Stefánsdóttir dansari hefur verið ráðin í starf skólastjóra Listdansskóla Íslands en hún tók formlega við því starfi 26. maí s.l. Sjö umsækjendur voru um starfið.

Lára lauk meistarnámi í kóreógrafíu við Middlesex University, London vorið 2006 og hefur kennt við Listdansskóla Íslands síðan 2007. Hún hefur verið atvinnudansari síðan 1980 og var fastráðinn við Íslenska dansflokkinn frá 1982-2004. Þar dansaði Lára fjölmörg burðarhlutverk með flokknum.  Lesa meira...

06/08/09 GRUNNSKÓLI - AFHENDING STUNDATAFLNA

Stundatöflur fyrir grunnskóladeild verða afhentar föstudaginn 21. ágúst milli klukkan eitt og fimm (13-17)

Kennsla hefst svo samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 25.ágúst

03/08/09 FRAMHALDSDEILD SKÓLASETNING

Starf framhaldsdeildar hefst með formlegri skólasetningu miðvikudaginn 19.ágúst klukkan 14:00

Þar verða afhentar stundatöflur, farið yfir veturinn og starf skólans.

Kennsla hefst svo samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 20.ágúst

Ekki er haldið annað inntökupróf fyrir framhaldsdeildina að hausti en nemendum er boðið að koma í prufutíma með viðeigandi hóp.  Áhugasömum er bent á að hringja í síma 588 9188 eða skrá sig í gegnum rafrænu skráninguna í dálkinum hér til hliðar.

22/06/09 Inntökupróf í grunnskóladeild, börn fædd 2000 og síðar

Annað inntökupróf fyrir grunnskóla verður haldið laugardaginn 15.ágúst 2009 í húsnæði skólans að Engjateigi 1.

9-11 ára börn mæta kl. 11:00 
12-15ára mæta kl. 12:00

Foreldrar eru beðnir um að skrá börn sín í gegnum rafrænu skráningar síðuna úr valmyndinni hérna til hliðar.

18/06/09 Nemendur og kennarar komin heim frá Kuopio Finnlandi

Þá eru komin aftur heim 8 ungmenni af 7.stigi Listdansskólans sem voru í Finnlandi síðastliðna viku og tóku þar þátt í samnorrænu verkefni Corridor sem aftur var hluti af öðru norrænu/baltnesku samstarfi sem kallast Keðja.  

Íslensku krakkarnirsyning  Lesa meira...

05/06/09 Rafræn skráning

Eins og glöggir lesendur síðunnar væntanlega átta sig á þá hefur nýr valmöguleiki bæst við í valmyndinni hérna til hægri.  Núna geta nýnemar skráð sig í skólann hérna á vefsíðunni með því að fylla út einfalt eyðublað.  Starfsfólk skólans mun svo hafa samband eins fljótt og auðið er varðandi inntökupróf eða prufutíma. 

26/05/2009 Útskrift þriggja nemenda

Þriðjudaginn 26.maí útskrifuðust þær Inga Huld Hákonardóttir, Steinunn Jónsdóttir og Þórunn Edda Sigurjónsdóttir úr framhaldsdeild Listdansskóla Íslands.  Það verður spennandi að sjá hvað þessar fallegu stúlkur taka sér fyrir hendur í framtíðinni og erum við kennarar og starfsfólk mjög stolt af þeim eins og öðrum nemendum okkar.  

 

Við óskum þeim alls hins besta í lífinu og eigum örugglega eftir að sakna þeirra mikið.   

25/05/09 Sigrún Ósk í úrslit í MORA ballettkeppninni.

Sigrún Ósk dansar Kitri í íslensku undankeppninniSigrún Ósk Stefánsdóttir komst áfram í 15 manna úrslit í Stora Daldansen ballettkeppninni í Mora, Svíþjóð síðastliðna helgi.  Tveir nemendur fóru frá Listdansskólanum í ár ásamt Birgitte Heide sem hafði veg og vanda af æfingum fyrir keppnina eins og svo oft áður.  Þetta er annað árið í röð sem Listdansskólinn á keppanda í úrslitum en í fyrra komst Frank Fannar Pedersen einnig í 15 manna úrslitin.  Þetta verður að teljast góður árangur og til marks um gæði kennslunnar og starfsins hérna í skólanum hjá okkur.    Lesa meira...

20/05/09 LÁRA STEFÁNSDÓTTIR RÁÐIN NÝR SKÓLASTJÓRI LISTDANSSKÓLA ÍSLANDS

Lára Stefánsdóttir hefur verið ráðin nýr skólastjóri Listdansskóla Íslands í stað Laurenar Hauser sem hverfur nú til annarra verka.  Lára tekur formlega við starfinu 26. maí n.k. og mun á næstu vikum vinna með starfsmönnum skólans að undirbúningi næsta skólaárs.  

Lára er með meistaragráðu í "Choreography" frá Middlesex University í London.  Hún hefur áralanga reynslu sem dansari og danshöfundur og hefur hlotið verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín víða um heim.  Lára hefur kennt við Listdansskólann undanfarin ár.  Lesa meira...

13/05/09 ELLEFU STYRKIR TIL NÝNEMA VIÐ HÍ / afreks- og hvatningarsjóður stúdenta Háskóla Íslands


Ellefu styrkir verða veittir úr Afreks- oghvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands 16. júní nk. Um er að ræða styrki tilnemenda sem náð hafa afburðaárangri á stúdentsprófi og innritast í HáskólaÍslands. Hver styrkur nemur 300.000 krónum auk niðurfellingar skráningargjaldsí Háskólann, sem er 45.000 krónur.   Lesa meira...

Syndicate content