Inntökupróf í framhaldsdeild fyrir haustönn 2009 verða í Listdansskóla Íslands að Engjateigi 1, mánudaginn 18. maí kl. 18:00.
Inntökupróf í framhaldsdeild fyrir haustönn 2009 verða í Listdansskóla Íslands að Engjateigi 1, mánudaginn 18. maí kl. 18:00.
Inntökupróf fyrir nemendur sem eru fæddir árið 2000 verður í Listdansskóla Íslands, að Engjateigi 1, laugardaginn 9. maí kl. 13.30 - 14:30.
Árleg vorsýning Listdansskóla Íslands verður 8. apríl á Stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu. Sýningarnar verða tvær, fyrri kl. 17:00 og seinni kl. 20:00. Miðasala er hafin í Borgarleikhúsinu og kostar miðinn 2000 kr. Ókeypis er fyrir börn 5 ára og yngri.
Tveir nemendur úr Listdansskóla Íslands, Sigrún Ósk Stefánsdóttir og Þórunn Edda Sigurjónsdóttir verða fulltrúar Íslands í norrænu ballettkeppninni sem haldin verður í MORA í Svíþjóð 22.-23. maí n.k. Þrír dansarar voru valdar til vara, allar úr Listdansskóla Íslands, þær Bryndís Snæfríður Gunnarsdóttir, Ellen Margrét Bæhrenz og Sigríður Ólöf Valdimarsdóttir. Kennarar og starfsfólk listdansskólans óskar þeim til hamingju með sigurinn og góðs gengis í MORA.
FÍLD, félag íslenskra listdansara, stendur fyrir undankeppni fyrir "Stora Daldansen", sem er norræn ballettkeppni sem haldin er í MORA í Svíþjóð í maí n.k., í Íslensku Óperunni 25. febr. kl. 20:00. Alls taka 24 listdansnemendur þátt, þar af 16 nemendur frá Listdansskóla Íslands. Þrír keppendur verða valdir sem fulltrúar Íslands. Ólöf Ingólfsdóttir, danshöfundur, verður kynnir keppninnar. Miðasala fer fram í Óperunni sýningardaginn frá kl. 14:00 - 20:00. Miðaverð er 1500,- en nemendur fá miðann á 1000,- gegn framvísun danskorts.
Listdansskólanum var boðið að kynna starfsemi sína fyrir 150 nemendum í 7. og 8. bekkjum Laugalækjarskóla á menningarviku sem stóð yfir dagana 26. - 30. janúar. Nokkrir nemendur sýndu atriði úr jólasýningu skólans og Lauren Hauser, skólastjóri hélt fyrirlestur um listdans.
Dansarar úr Listdansskóla Íslands taka sporið á vortónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands dagana 14. - 18. apríl.
Árleg vorsýning Listdansskóla Íslands verður haldin í Borgarleikhúsinu miðvikudaginn 8. apríl. Sýningarnar verða tvær, kl. 17:00 og 20:00.
Gleðilegt ár!
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá 7. janúar á grunn- og framhaldsstigi
Kennsla í forskóla (5-6 / 7-8 ára börn) tilkynnt síðar
Hlakka til að sjá ykkur!