Þann 10. til 15. des. ætla nokkrir nemendur á 6. og 7. stigi að sýna atriði úr Hnotubrjótnum á nokkrum hjúkrunarheimilum í borginni.
Þann 10. til 15. des. ætla nokkrir nemendur á 6. og 7. stigi að sýna atriði úr Hnotubrjótnum á nokkrum hjúkrunarheimilum í borginni.
Þann 20. des. verður Sinfóníuhljómsveit Íslands með tvær sýningar í Háskólabíói. Nemendur á 7. stigi Listdansskóla Íslands sýna þar atriði úr Hnotubrjótnum.
Jólasýning grunnskóladeildar Listdansskóla Íslands verður haldin í Íslensku Óperunni , föstudaginn 12. desember. Sýningarnar verða tvær sú fyrri kl. 18:30 og seinni sýningin kl. 20:00. Miðasala verður í Íslensku Óperunni föstudaginn 12. des. frá kl. 14:00 - 18:00. Símapantanir í síma 5114200 frá kl. 10:00-18:00. Nemendur grunnskólans fá 1 frímiða. Miðaverð er kl. 1.500. Engin sætanúmer.
Jólasýning framhaldsdeildar var að þessu sinni haldin á stóra sviði Þjóðleikhússins laugardaginn 29. nóv. Eftir sýninguna var 11 nemendum afhent lokaprófskírteini á stóra sviði Þjóðleikhússins. Boðið var upp á kaffi og konfekt í Kristalssalnum eftir sýninguna.
Útskriftarnemendur úr framhaldsdeild Listdansskóla Íslands sýna 2 verk sem unnin voru í kóreógrafíu tímum á vorönn 2008 og endurunnin fyrir þessa sýningu í "projet" tímum á haustönn 2008. "THE SHOW MUST GO ON" eftir tónlist hljómsveitarinnar Queen og "BEÐIÐ EFTIR BETU", Eftir tónlist Jorma Uotinen úr Sentimental Secrets: 2006.
Þrír nemendur í Listdansskóla Íslands, Þórunn Edda Sigurjónsdóttir, Tinna Guðlaug Ómarsdóttir og Þórunn Óskarsdóttir sýndu frumsamið verk á Unglist í Íslensku Óperunni.
Listdansskóli Íslands sendi í fyrsta sinn fulltrúa í alþjóðlega listdanskeppni í Peking, Frank Fannar Pedersen, átján ára listdansnema á 4. ári. Þetta er annað árið sem keppnin er haldin, nú undir heitinu "Bejing international ballett competition". Þúsundir nemenda sækja um á hverju ári en rúmlega hundrað komast að. Þetta er virt keppni og mikill heiður að vera þátttakandi.
Ellefu nemendur í grunn- og framhaldsdeild Listdansskóla Íslands taka þátt íhátíðarsýningu í tilefni afmælis Atla Heimis sunnudaginn 21. sept. 2009 kl. 16:00 í Þjóðleikhúsinu. Danshöfundar eru Margétt Gísladóttirog Lára Stefánsdóttir.
Inga Huld Hákonardóttir, nemandi á 4. ári í framhaldsdeildkemur fram í söfnunarþætti stöðvar 2 í þágu mænuskaddaðra. Danshöfundur er Lára Stefánsdóttir
Þann 26. sept. munu nemendur frá Listdansskóla Íslands og öðrum skólum fara í dansferð á Laugarvatn. Kennarar frá skólunum verða með danstíma fyrir nemendurna, farið verður í sund, borðað saman og haldin kvöldvaka. Gist verður á Laugarvatn Youth Hostel.
FORSKÓLADEILD: Kennslan byggist á undirbúningi fyrir ballettnám. Stuðst er við balletttækni og kennd eru grunnspor í ballett. Inn í ballettinn fléttast spuni og leikir. Á hverri önn er tekið fyrir ákveðið þema, valinn kafli úr þekktum verkum eins og Svanavatninu og Þyrnirós og músik úr þeim verkum notuð í kennslunni.