Fréttir

12.08.08 HAUSTÖNN 2008


Stundatöflur verða afhentar föstudaginn 15. ágúst frá kl.13:00-17:00.

Kennsla framhaldsdeildar hefst mánudaginn 18. ágúst skv.stundaskrá.

Kennsla grunnskóladeildar hefst mánudaginn 25. ágúst skv.stundaskrá.

Innritun í forskóladeild ( börn f. 2000 t.o.m. 2003) hefst mánudaginn18. ágúst og kennsla í forskóladeildinni ( 12 vikna námskeið) hefst 8. september.

03.06.08 - KEÐJA-SAMSTARF Í KUOPIO Í FINNLANDI Í JÚNÍ 2009


KEÐJA er Skandinaviskt samstarfsverkefni.  Á tímabilinu 2008-2010 munu dansarar, danshöfundar og kennarar fráÍslandi, Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Finnlandi hittast sex sinnum og sameinastí nemendaverkefni sem heitir “Dansævintýri”. Tilgangurinn með verkefninu  er að auka áhorf í gegnum vinnu meðbörnum og unglingum. 

 Íslenski dansflokkurinn, sem er aðili að KEÐJA, bauðListdansskóla Íslands að taka þátt í þessu nemendaverkefni.  Lesa meira...

21.05.08 - ÚTRÁS ÍSLENSKRA LISTDANSARA

Níu íslenskir listdansnemendur munu á haustmánuðum hefja nám við nokkra af virtustu listdansskólum í heimi og fjórir hafa fengið inngöngu í dansdeild Listaháskóla Íslands.   Þetta verður að teljast frábær árangur íslenskra dansara þegar haft er í huga að 3 íslenskir nemendur komust inn í PARTS í Belgíu af 1100 sem sóttu um.  Þetta er afrakstur mikillar vinnu sem krefst mikils sjálfsaga, tækni, skipulagningar og tíma.  Að námi loknu opnast væntanlega ýmsar dyr og atvinnutækifæri til að hasla sér völl bæði erlendis og hér heima.  

Védís Kjartansdóttir og Melkorka Magnúsdóttir, báðar f.v. nemendur í Listdansskóla Íslands og Bára Sigfúsdóttir, áður nemandi í Listaháskóla Íslands hefja nám í PARTS í Belgíu.  Lesa meira...

21.05.08 - VANGOLDIN SKÓLAGJÖLD

Forráðamönnum þeirra nemenda sem eiga ógreidd skólagjöld er vinsamlega bent á að gera skil sem allra fyrst.  Forsenda þess að nemendur skráist í skólann  milli ára er að eldri skólagjöld hafi verið greidd.  Sjá nánar undir starfsemin/umsóknir og skólagjöld.

15.04.08 - FORSKÓLADEILDIN HELDUR ÁFRAM


Ákveðið hefur verið að halda áfram með forskóladeildina næsta haust.  Það eru annarsvegar nemendur sem fæddir eru 2000 og 2001 (7-8 ára) og hins vegar nemendur sem fæddir eru 2002 og 2003 (5-6 ára).

Forskólabörn þurfa ekki að mæta í inntökupróf en skráning í forskóladeildina fer fram í haust og verður auglýst síðar.

15.04.08 - INNTÖKUPRÓF Í GRUNNSKÓLANN


Inntökupróf fyrir nemendur sem fæddir eru 1999 verður í Listdansskóla Íslands að Engjateigi 1, laugardaginn 3. maí kl. 15:00.  Hafið með æfingaföt og æfingaskó.   Innritun fer fram á staðnum.

Eldri nemendur sem vilja hefja nám við skólann er boðið að mæta í prufutíma frá 25. ágúst til 15. september.  Eftir 15. september verða ekki teknir inn nemendur í skólann.

INNRITUN Í FRAMHALDSDEILD HAUSTIÐ 2008

Innritun í framhaldsdeild Listdansskóla Íslands fyrir haustönn 2008 fer fram laugardaginn 5. apríl kl. 15:00 í Listdansskóla Íslands,  Engjateigi 1.

"STORA DALDANSEN" í Mora

Félag íslenskra listdansara (FÍLD) stóð fyrir undankeppni í klassískum ballett vegna hinnar árlegu ballettkeppni "Stora Daldansen" sem haldin er fyrir framhaldsskólanemendur árlega í Mora í Svíþjóð.  Í ár verður keppnin haldin dagana 1.-3. maí.  Undankeppnin var haldin í Listdansskóla Íslands og voru þátttakendur 12, allir nemendur við Listdansskólann. Dómnefnd valdi 3 keppendur sem verða fulltrúar Íslands í Mora í Svíþjóð, þau Frank Fannar, Lilju og Ingu Huld.  Ennfremur tekur Erna Ósk þátt í keppninni í hópi nemenda 19 ára og eldri. Sjá myndir frá keppninni.

PÁSKAFRÍ - VORSÝNING - PRÓFDAGAR

Páskafrí hefst mánudaginn 17. mars og lýkur mánudaginn 24. mars.  Kennsla hefst aftur þriðjudaginn 25. mars.

Vorsýningar grunnskóla- og framhaldsdeildar verða í Borgarleikhúsinu 14. maí kl. 17:00 og 20:00.  

Kennt verður í grunnskóladeild til 31. maí.  Próftímabil grunnskóladeildar verður frá 22. - 31. maí.  

Kennt verður í framhaldsdeildinni til 30. apríl og á prófum þá að vera lokið.  Frjáls mæting verður í framhaldsdeildinni í maí, en skyldumæting er á æfingar fyrir vorsýningu. 

BALLERÍNUR ÚTSKRIFAST

Laugardaginn 15. desember útskrifuðust formlega 7 nememdurfrá Listdansskóla Íslands, 4 nemendur af nútímalistdansbraut og 3 nemendur afklassískribraut.  Lauren Hauser,skólastjóri hélt stutta ræðu.  Íræðunni talaði hún um hvað námið krefðist mikillar tæknilegrar vinnu,einbeitingar og aga og hvað þessir nemendur hefðu staðið sig vel bæði tæknilegaog í listsköpuninni sjálfri. Myndir frá útskriftinni er að finna á vefsíðunni.

Syndicate content