Skólagjöld & frístundakort
Skólagjöld við Listdansskóla Íslands 2011-2012
Stjórn skólans hefur ákveðið að hækka skólagjöld um tæp 2% fyrir þetta skólaár og eru skólagjöldin þá sem hér segir:
Framhaldsstig, 16 ára og eldri (fæðingarár 1995 eða fyrr)
Full skólagjöld eru kr. 113.000 eða 56.500 á önn
Systkinaafsláttur: fyrsta barn greiðir full skólagjöld en systkinin 70% kr. 79.100 eða kr. 39.550 hvora önn.
Grunnskólastig 10-15 ára (börn fædd 1996-2001)
Full skólagjöld eru kr. 90.000 eða kr. 45.000 á hvorri önn.
Systkinaafsláttur: fyrsta barn greiðir full skólagjöld en systkinin 70% kr. 63.000 alls eða kr. 31.500 á hvorri önn.
9 ára (börn fædd 2002)
Full skólagjöld eru kr. 78.000 eða kr. 39.000 á hvorri önn
Systkinaafsláttur: fyrsta barn greiðir full skólagjöld en systkinin 70% kr. 54.600 eða kr. 27.300 á hvorri önn
Listdansskóli Íslands er þáttakandi í verkefni Reykjavíkurborgar um frístundakortið. Með því býðst foreldrum niðurgreiðsla frá borginni á skólagjöldum barna sinna.
"Frístundakortið - Styrkjakerfi í frístundastarfi"
fyrir 6 til 18 ára börn og unglinga í Reykjavík
Í september 2007 var tekið í notkun nýtt styrkjakerfi, Frístundakort, vegna tómstunda barna og unglinga 6 til 18 ára í Reykjavík. Haustið 2007 nam styrkur á hvert barn kr. 12.000, árið 2008 er styrkurinn kr. 25.000 og árið 2009 verður hann óbreyttur kr. 25.000 á barn." (af reykjavik.is)
Allar nánari upplýsingar má nálgast HÉRNA
Til að ráðstafa styrk farið inná vef borgarinnar RAFRÆN REYKJAVÍK undir Frístundakort.

