Guðmundur Helgason

Guðmundur Lauk grunnnámsskeiði í “EFTI” Equinox FitnessTraining Institute – einkaþjálfun- 2007. M.F.A. gráðu í dansi frá New York University – Tisch School of the Arts árið 2006. Diploma í dansi frá konunglega Sænska Ballettskólanum í Stokkhólmi árið 1993. Hann stundaði nám við Listdansskóla Þjóðleikhússins (nú Listdansskóli Íslands) á árunum 1987-1991.
Guðmundur dansaði með Íslenska dansflokknum frá 1993 til2004 og tók þátt í öllum uppfærslum á þeim tíma. Hann var tilnefndur til dansverðlauna ársins á Grímunni, Íslensku leiklistarverðlaununum árið 2003, og hlaut áhorfendaverðlaun fyrir “Party” í Dansleikhússamkeppni LR og Íslenska dansflokksins í júní 2003. Hann varð í 2. sæti í danshöfundakeppni Íslenska dansflokksins fyrir “Le Devine”, danshöfundakeppni Íslenska dansflokksins 1998.
Guðmundur var meðlimur Akademíunnar fyrir Grímuna, Íslensku leiklistarverðlaunin 2003/2004, ritari starfsgreinaráðs í hönnun, listum og handverki, skipaður af SFR/menntamálaráðuneyti. Einnig ritari félags íslenskra listdansara á árunum 1995 - 1998. Guðmundur kennir nú við Listdansskólann ballett, módern, spuna, danssmíðar ásamt því að vera með vídeókúrs.

