Fimm framhaldsnemendur útskrifast frá Listdansskóla Íslands
Að lokinni flottri sýningu framhaldsdeildar Listdansskóla Íslands í Austurbæ 30.nóvember síðastliðinn var komið að því að útskrifa fimm unga dansara sem sumir hverjir hafa verið í skólanum í heil 10 ár. Það verður spennandi að sjá hvað þessar glæsilegu stúlkur taka sér fyrir hendur núna að loknu námi. Við óskum þeim innilega til hamingju með áfangann!

Frá vinstri: Hildur Margrét Jóhannsdóttir, Hrund Jóhannesdóttir, Bryndís Snæfríður Gunnarsdóttir, Aldís Gunnarsdóttir, Snæfríður Ingvarsdóttir.


Að lokinni sýningu var svo haldið uppá áfangann heima hjá Bryndísi þar sem foreldrum útskriftarnemenda, kennurum og vinum og vandamönnum var boðið.

