Þriðjudaginn 1.júní var komið að tímamótum hjá 4 stúlkum í framhaldsdeild - útskrift !

Þær sem hér um ræðir eru Alexandra Litaker, Elín Signý Ragnarsdóttir, Eygló Ásta Þorgeirsdóttir og Gígja Jónsdóttir, allt mjög skapandi einstaklingar sem eflaust eiga eftir að setja mark sitt á listalíf okkar hérna á Íslandi. Kennarar og starfsfólk Listdansskóla Íslands óska þeim öllum til hamingju með áfangann og alls velfarnaðar í því sem þær taka sér fyrir hendur.