Í dag fór fram ballettkeppnin Stora Daldansen í Svíþjóð. Að þessu sinni fóru þrír keppendur utan frá Listdansskólanum þau Ellen Margrét Bæhrens, Karl Friðrik Hjaltason og Sigrún Ósk Stefánsdóttir.
Ellen gerði sér lítið fyrir og lenti í 3ja sæti keppninnar en hún dansaði tvo sólóa í keppninni úr Coppeliu og Le Corsair. Eftir því sem vefstjóri best veit er þetta besti árangur íslendings í þessari keppni til þessa. Að vanda var Birgitte Heide keppendum til halds og trausts úti en hún hefur haft yfirumsjón með æfingum fyrir keppnina.
Við óskum öllum þremur keppendunum til hamingju með áfangann og Ellenu sérstaklega til hamingju með þriðja sætið.