Í sumar munu fjórir nemendur Listdansskólans gleðja borgarbúa með dansi víðsvegar um borgina okkar.
Dansandi drengir eins og þeir kalla sig eru Karl Friðrik Hjaltason, Kolbeinn Ingi Björnsson, Sveinn Breki Hróbjartsson og Viktor Már Leifsson allt nemendur á fyrsta ári framhaldsdeildar. Þeir sóttu um hjá "Skapandi sumarstörfum" á vegum Íþrótta og tómstundaráðs Reykjavíkur og munu í sumar hafa atvinnu af því að semja og sýna dansverk.
Markmið verkefnisins er að færa listdansinn nær fólkinu og kynna hann fyrir fólki - ekki síst strákum og vonandi hvetja fleiri stráka til að leggja dansinn fyrir sig. Þeir munu hafa æfingaaðstöðu í Listdansskólanum að Engjateigi og svo er stefnan að sýna sem víðast um borgina með megin fókus á yngra og eldra fólk. Hafið því augun opin á ferð um borgina í sumar - það er aldrei að vita hvenær Dansandi drengir skjóta upp kollinum :)