Það eru ekki bara piltar úr Listdansskólanum sem ætla að skemmta borgarbúum með dansi í sumar heldur hafa 3 stúlkur í framhaldsdeildinni einnig hafið störf undir "Skapandi sumarstörf" hjá Hinu Húsinu. Lesa meira...
Það eru ekki bara piltar úr Listdansskólanum sem ætla að skemmta borgarbúum með dansi í sumar heldur hafa 3 stúlkur í framhaldsdeildinni einnig hafið störf undir "Skapandi sumarstörf" hjá Hinu Húsinu. Lesa meira...
Út er komið fréttabréf Listdansskóla Íslands þar sem stiklað er á stóru á starfsárinu 2009-2010 Fréttabréfið má nálgast með því að smella HÉRNA
Þriðjudaginn 1.júní var komið að tímamótum hjá 4 stúlkum í framhaldsdeild - útskrift !

Þær sem hér um ræðir eru Alexandra Litaker, Elín Signý Ragnarsdóttir, Eygló Ásta Þorgeirsdóttir og Gígja Jónsdóttir, allt mjög skapandi einstaklingar sem eflaust eiga eftir að setja mark sitt á listalíf okkar hérna á Íslandi. Kennarar og starfsfólk Listdansskóla Íslands óska þeim öllum til hamingju með áfangann og alls velfarnaðar í því sem þær taka sér fyrir hendur.
Þriðjudaginn 1.júní klukkan 17:30 verður bíósýning í bókasafni Listdansskólans.
Sýndar verða dansstuttmyndir sem nemendur á 3ja ári framhaldsdeildar hafa gert núna á vormánuðum.
Aliir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Í sumar munu fjórir nemendur Listdansskólans gleðja borgarbúa með dansi víðsvegar um borgina okkar.
Dansandi drengir eins og þeir kalla sig eru Karl Friðrik Hjaltason, Kolbeinn Ingi Björnsson, Sveinn Breki Hróbjartsson og Viktor Már Leifsson allt nemendur á fyrsta ári framhaldsdeildar. Þeir sóttu um hjá "Skapandi sumarstörfum" á vegum Íþrótta og tómstundaráðs Reykjavíkur og munu í sumar hafa atvinnu af því að semja og sýna dansverk. Lesa meira...
Í dag fór fram ballettkeppnin Stora Daldansen í Svíþjóð. Að þessu sinni fóru þrír keppendur utan frá Listdansskólanum þau Ellen Margrét Bæhrens, Karl Friðrik Hjaltason og Sigrún Ósk Stefánsdóttir.
Ellen gerði sér lítið fyrir og lenti í 3ja sæti keppninnar en hún dansaði tvo sólóa í keppninni úr Coppeliu og Le Corsair. Eftir því sem vefstjóri best veit er þetta besti árangur íslendings í þessari keppni til þessa. Að vanda var Birgitte Heide keppendum til halds og trausts úti en hún hefur haft yfirumsjón með æfingum fyrir keppnina. Lesa meira...
Þá er komið að því að VINICIUS mun kenna opna tíma fyrir framhaldsdeild LÍ í næstu viku, 17.maí - 24.maí.
Sjá heimasíðu hans www.vinicius.de
Hann mun kenna ýmis blæbrigði Sambadansins en hann er einmitt frá landi Sömbunnar, Brasilíu.
Tímarnir verða í danssal Listaháskóla Íslands á Sölvhólsgötu, kl. 17 00 - 19 00
Missið ekki af þessu tækifæri!!!
Laugardaginn 8.maí verða haldin inntökupróf inní grunn- og framhaldsdeild Listdansskólans
Grunnskólanemendur (9-15ára) mæti klukkan 12:30 fyrir prófið sem hefst klukkan eitt
Framhaldsnemendur (16 ára og eldri) mæti klukkan 14:30 fyrir prófið sem hefst klukkan þrjú.
Við minnum á rafrænu skráninguna sem má finna HÉRNA
Að kvöldi alþjóða dansdagsins 29.apríl stóð Félag íslenskra listdansara (Fíld) fyrir hópdansakeppni þar sem keppendur sýna frumsaminn dans. Alls voru um 50 keppendur skráðir til leiks í 12 hópum allt nemendur frá skólum innan Fíld. Keppt var í tveimur aldursflokkum 13-15 ára og 16-20+ ára og lögð áhersla á "frumsköpun í dansi óháða dansstíl þar sem hugmyndaauðgi og dansgleði er í fyrirrúmi" Lesa meira...
Þann 29.apríl ár hvert er haldinn hátíðlegur um allan heim alþjóðlegi dansdagurinn samkvæmt Alþjóða Dansráðsins innan UNESCO
Nánar má lesa um dansdaginn HÉRNA
Starfsfólk Listdansskólans óskar öllum dönsurum og dansunnendum nær og fjær til hamingju með daginn :)