Glæsileg dansatriði á jólatónleikum Sinfó
Nú 16. & 17.desember dönsuðu 28 nemendur framhaldsdeildar Listdansskólans á jólatónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborgarsal Hörpu. Dansatriðin sömdu kennarar skólans Brian Gerke og Guðmundur Helgason og komu þau einstaklega vel út í þessari glæsilegu umgjörð sem Eldborgarsalurinn er. Krakkarnir stóðu sig mjög vel og ljóst að þessi reynsla er þeim mjög dýrmæt, að dansa í svo stórum sal (um 1.400 áhorfendur á hverjum tónleikanna þriggja) við undirleik heillar sinfóníuhljómsveitar.
Hópurinn glæsilegi sem dansaði í Hörpu
Þar með er lokið þessari haustönn hjá okkur í Listdansskólanum og við komin í jólafrí. Kennsla hefst aftur samkvæmt stundaskrá 5. janúar 2012.

