Foreldrafélag er starfrækt við Listdansskóla Íslands og hafa allir foreldrar sem eiga börn og unglinga í skólanum rétt á að taka virkan þátt í því. Ár hvert er kjörin ný stjórn foreldrafélagsins sem tekur að sér að stýra þeim verkefnum sem að foreldrafélagin snúa.
Aðalfundur foreldrafélagsins var haldinn þann 16. janúar 2007 og má lesa fundargerð fundarins hér að neðan. Þar var kjörin ný stjórn, en hana skipa Jens G. Einarsson, Sigurður Jónasson, Auður Bjarnadóttir, Guðrún Dögg Jóhannsdóttir, og Sigurður Ingvarsson.
Meginmarkmið foreldrafélagsins er að standa vörð um hagsmuni nemenda skólans og vinna að þeim málum sem stuðla að framgangi skólans og nemenda hans.
Á aðalfundi félagsins var ákveðið að ráðast í ákveðin verkefni sem tengjast tengslaneti skólans við aðra listdansskóla, gæðamati þessa skóla og annarra sem kenna listdans samkvæmt nýrri námskrá og stuðla að því að Listdansskóli Íslands verði kjarnaskóli á þessu sviði.