Námsskrá

Samkvæmt aðalnámskrá er grunnnámi í listdansi skipt í tvo áfanga. Í 1. áfanga eru 3 stig frá 9-11 ára aldurs. Í því er kenndur klassískur ballett, spuni og karakter/þjóðdans. Í 2. áfanga eru 4. stig og eru nemendur á aldrinum 12-15 ára. Þar er kenndur klassískur ballett, táskór, repertoire, nútímadans, spuni og djass. Nemendur fá kynningu í listdanssögu í repertoire tímum. Einnig eru í boði sérstakir tímar fyrir stráka einu sinni í viku í 90 mínútur á laugardögum. Tímarnir eru ætlaðir strákum 12-15 ára í staðinn fyrir táskórtíma en yngri strákar geta tekið þátt eftir samkomulagi kennarans. Hver tími hefst á upphitunaræfingum sem er blanda af fimleika- og dansæfingum. Þessar æfingar byggja upp styrk, þol og liðleika nemanda. Í tímum er lögð áhersla á samspil líkama, dýnamik og rýmis. Ennfremur eru gerðar dansæfingar á gólfi, fimleikaæfingar á dýnum og nemendur læra samsetningar af Street Dance, Hip Hop og Funk. Kennslustundir eru samkvæmt aðalnámskrá og birtar með stundatöflum á haustin. Markmið Í aðalnámskrá grunnnáms í listdansi eru sett fram lokamarkmið í listdansi. Einnig eru sett fram áfangamarkmið ásamt lýsingu á námi í ballett, táskótækni, dansverkum (repertoire), þjóðdönsum og karakterdönsum, spuna, nútímalistdansi og djassdansi. Auk þess eru sett fram í viðauka efnisatriði í kennslu á öllum stigum í hverjum námsþætti. Lokamarkmið lýsa þekkingu og færni sem nemendur eiga að hafa tileinkað sér að loknu grunnnámi í listdansi og gefa þannig heildarmynd af því sem að er stefnt í námi og kennslu. Námið skiptist í tvo áfanga og lýsa áfangamarkmiðin námskröfum og megininntaki náms í hvorum þeirra. Lokamarkmið Lokamarkmið skólans er styðst við aðalnámskrá ráðuneytisins. Við lok 7. stigs eiga nemendur að vera vel undirbúnir fyrir frekara nám í framhaldsdeildum. Nemendur eiga að hafa öðlast grunnþjálfun í klassískum og nútímatækni til að gera þeim kleift að velja á milli klassískrar eða nútíma sérhæfingar í framhaldsdeild. Við lok grunnnáms í listdansnámi eiga nemendur að hafa öðlast tæknilega og listræna kunnáttu og færni til þess að fá inngöngu í listdansbrautir framhaldsskóla hér á landi eða erlendis. Nemandi:

    geti samhæft danshreyfingar við mismunandi tónlist þekki líkamsstöðu sína og geti beitt henni samkvæmt reglum listdansins hafi þróað með sér liðleika, styrk og jafnvægi hafi tileinkað sér öguð vinnubrögð, ábyrgð, sjálfsaga og sjálfstæði þekki helstu grunnheiti og hugtök listdansins og geti beitt þeim við útfærslu dansa geri sér grein fyrir rýmisnotkun og hugtökum tengdum mismunandi áttum geti spunnið út frá fyrirfram gefnum verkefnum og hafi þor til að tjá sig í hinu skapandi ferli hafi náð að þróa með sér öryggi jafnt í kennslustundum sem og á leiksviði hafi góða líkamsstjórn og geti einangrað einstaka líkamshluta í dansi hafi kynnst mismunandi tjáningarformum og dansstílum hafi kynnst tónrænum, myndrænum og leikrænum þáttum í listdansi hafi kynnst sögu listdansins í tengslum við kennslu í dansverkum (repertoire) hafi kynnst þjóðlegri, íslenskri dansmenningu og dansmenningu annarra þjóða geti unnið með öðrum og tekið tillit til annarra í hópvinnu hafi grunnatriði í nútímadanstækni á valdi sínu.

Námsmat Námsmat byggist í meginatriðum á símati. Fylgst er með ástundun nemenda. Einnig er lagt mat á hvernig nemendur standa sig í tækniæfingum, hvort þeir geti farið eftir fyrirmælum, sýnt sjálfstæði og sköpun í vinnubrögðum og haft vald á listrænni útfærslu. Námsmat byggir á:

    mætingu og vinnubrögðum samhæfingu hreyfinga og tónlistar tæknigetu framförum

Stigspróf eru þreytt við lok 1. Áfanga (á 3. stigi) og við lok 2. áfanga (á 7. stigi) . Námsmat byggir á:

    mætingu og vinnubrögðum kjarki og þori túlkun líkamlegri tónskynjun tæknigetu valdi á líkama og hreyfingum samhæfingu

Við lok 2. áfanga bætist við mat á:

    listrænni útfærslu rýmisnotkun framtíðarmöguleikum nemenda sem listdansara

Stigspróf eru þreytt haust og vor við lok hvers áfanga: eftir lok 3. og 7. stigs. Prófnefnd skipar skólastjóri og kennarar grunnskólans. Nemendur fá einkunn frá skólastjóra og kennara eftir próf. Eftir hvert stigi er einnig metin framför nemandans í stigsmat. Nemendur fá afhent frammistöðuskírteini við lok hvers stig. Námsmat 80%: hvort nemandi hafi náð tæknilegum tökum á námsefni með hliðsjón af aðalnámskrá. Metið er einnig fyrir mætingu og vinnusemi og gildir það 20% af vægi lokaeinkunnar. Nám í listdansi á framhaldsstigi Nám og kennsla Náminu er fyrst og fremst ætlað þeim sem hyggja á framhaldsnám í listdansi og ætla sér að hafa atvinnu af greininni. Nemendur geta sótt um nám á framhaldsstigi í Listdansskóla Íslands á þrenns konar forsendum:

    Nemandi er skráður á listnámsbraut á listdanskjörsviði í framhaldsskóla Nemandi er skráður á bóknámsbraut eða starfsnámsbraut og tekur einingar í Listdansskóla Íslands sem valgreinar Nemandi er eingöngu skráður í nám í Listdansskóla Íslands

Námstíminn er þrjú ár og kennsluvikur eru 36 á ári. Klassískur og nútíma listdans skiptast jafnt á öll námsárin en sumir námsþættir eru kenndir í námskeiðsformi. Áætlun er að bæta við fjórða námsári þar sem nemendur gætu tekið þátt í danstíma skólans og hugsanlega stofnun nemendaflokks í samstarfi við gestakennarar frá Íslenska Dansflokknum í þróun. Skipulag námsins Listdans á framhaldskólastigi skiptist í tvær námslínur: klassískur listdans og nútíma listdans. Kenndur eru eftirfarandi listgreinar samkvæmt aðalnámskrá menntamálaráðuneytisins: Klassískur ballett, táskór, repertoire, pas de deux, nútímadans, djass, spuni og snertispuni, danssmiði, kóreografí. Klassísk listdansnám er byggt á Vaganova kerfi og er framhald af kennslu í grunnskóladeild skólans. Kennsla fer fram á mánud. - laugard. Á nútímabraut er klassísk tækni kennd á fyrsta ári bæði í haust og vor. Á öðru og þriðju ári er klassísk tækni kennd sem þriggja eininga áfangi í haust. Áfangalýsingar fyrir nútíma áfanga sem ekki er lýst í aðalnámskrá menntamálaráðuneytisins fylgir með í viðauka. Í Listdansskóla Íslands á framhaldsstigi eru einnig í boði aukatímar í ballett- og módern tækni fyrir þá sem vilja æfa oftar í viku. Áætlað er að bæta við valáfanga skólaárið 2007-2008. Kennslutímafjöldinn eru samkvæmt aðalnámskrá og birtar með stundatöflu í haust. Ein eining reiknast 32 klukkustundir á önn í verklegri kennslu. Lokamarkmið Lokamarkmið eru samkvæmt aðalnámskrá menntamálaráðuneytisins á framhaldsstigi. Við lok framhaldsstigs eiga nemendur að vera tilbúnir til frekara náms á háskólastigi hérlendis eða erlendis eða tilbúnir til að vinna sem atvinnudansarar hjá Íslenska Dansflokknum eða dansflokkum erlendis. Að loknu námi á listdanskjörsviði skal nemandi:

    kunna skil á grunnþáttum listdansins, þ.e. tíma, rými og krafti og geta nýtt sér þá í mismunandi dansverkum hafa gott vald á líkamsbeitingu, flæði og samhæfingu hreyfinga geta nýtt til fulls möguleika líkamans þannig að grunnþáttum listgreinarinnar sé fullnægt hafa þróað með sér tónræna, myndræna og leikræna eiginleika danslistarinnar skynja mismunandi hrynjandi, takta og blæbrigði tónlistar hafa vald á samhæfingu tónlistar og hreyfinga og geta notað tónlist sem stuðning í danstúlkun geta flutt og túlkað dansverk með tilliti til stíls og tilfinningalegs innihalds og gætt dansinn persónulegum blæbrigðum geta miðlað dansgleði til áhorfenda geta náð virkum samskiptum við áhorfendur geta einn eða í samvinnu við aðra flutt dansverk og verið meðvitaður um hlutverk sitt innan heildarinnar sem og rýmisins sem dansað er í geta þróað og útfært verk eftir eigin hugmynd með völdum aðferðum greinarinnar og verið gagnrýninn í framsetningu eigin dansverks* geta meðvitað tjáð tilfinningar, hugsun og/eða skoðanir í eigin túlkun eða sköpun geta kynnt eigin verk og hugmyndir skriflega og munnlega* geta samið dansverk, bæði hefðbundin og óhefðbundin og fært rök fyrir þeim sjónarmiðum sem liggja til grundvallar í eigin danshönnun* geta spunnið út frá gefnu upphafi, hreyfieiginleikum, hljómferli, rými eða eftir öðrum aðferðum hafa orðaforða listgreinarinnar á valdi sínu geta leitað sér upplýsinga um dansinn og nýtt sér í sjálfsnámi geta metið og rökstutt eigið vinnuferli og sýningarvinnu þekkja helstu strauma og stefnur í listdansi og geta notfært sér stílbrigði og stefnur frá tilteknum tímabilum í eigin listsköpun og listtúlkun geta tengt og metið dansverk útfrá því menningarlega og félagslega og sögulega samhengi sem það var skapað í þekkja helstu dansverk listdanssögunnar geta lagt mat á eigin verk og annarra á upplýstan og greinargóðan hátt og rökstutt mat sitt með vísan til grundvallarlögmála danslistarinnar hafa þróað með sér sjálfsaga

* Gildir fyrir nám á nútímalistdansbraut Námsmat Próf eru þreytt tvisvar á ári, á haustin og vorin, við lok áfangans á hverju stigi. Metið er 80%: hvort nemandi hefur náð tæknilega tökum á námsefninu, þekkingu, færni, sköpun, listrænni útfærslu og skilnings nemandans með hliðsjón af markmiðum aðalnámskrár. Metið er einnig mæting og vinnusemi og það er 20% af vægi lokaeinkunn. Prófnefnd skipar skólastjóri og kennarar. Nemendur fá einkunn við lok hvers áfanga. Einkunnir eru gefnar í heilum tölum á bilinu 1-10. Hver einkunn merkir:

    1-3 – Fall 4 – staðið án einingar 5-6 – staðið: 7-8 – staðið: 9-10 – staðið:

Markmið Nútímadeildar Nemandinn nái lykilatriðum og áherslum nútímadansins (sbr. Námskrá ) og geti yfirfært þá þekkingu á eigin líkama. Þróa hjá nemandanum mýkt, styrk, tónlistar og hrynjanda vitund. Þróa þarf hæfni nemandans til listrænnar sköpunar og tjáningar sem og sjálfstæðrar hugsunar og vinnubragða. Með aukinni þekkingu nemendans á nútímadansi eiga kröfurnar að aukast og skilningur nemandans að dýpka. Viðmið fyrir einkunnagjöf; Gott - einkunn 5-6 Nemandinn dansar af einbeitingu og innlifun. Nemandinn hefur náð færni í lykilatriðum nútímadansins (sbr. Námskrá) og sýni það í hreyfingu. Hefur þróð hjá sér mýkt, styrk, tónlistar og hrynjanda vitund. Nemandinn hefur gert tilraun til listrænnar sköpunar og tjáningar sem og sjálfstæðrar hugsunar og vinnubragða. Mjög gott - einkunn 7-8 Nemandinn dansar af góðri einbeitingu og innlifun. Nemandinn hefur náð góðri færni í lykilatriðum nútímadansins (sbr. Námskrá) og sýnir það í hreyfingu. Hefur þróað vel hjá sér mýkt, styrk, tónlistar og hrynjanda vitund. Nemandinn hefur sýnt góða tilraun til listrænnar sköpunar og tjáningar sem og sjálfstæðrara hugsunar og vinnubragða. Ágætt - 9-10 Nemandinn dansar af mjög góðri einbeitingu og innlifun. Nemandinn hefur náð mjög góðri færni í lykilatriðum nútímadansins (sbr. Námskrá) og sýnir það í hreyfingu. Hefur þróað hjá sér mjög góða mýkt, styrk og tónlistar og hrynjanda vitund. Nemandinn hefur sýnt mjög góða tilraun til listrænnar sköpunar og tjáningar sem og sjálfstæðrar hugsunar og vinnubragða. 80% símat og próf. 20% mæting Skólasóknarreglur Nemendur eru hvattir til að mæta stundvíslega í kennslustundir. Tilkynna þarf veikindi og fjarvistir. Ef veikindi verða í tvo daga eða lengur og eru vottuð af lækni telst aðeins helmingur viðkomandi fjarvistarstiga með til útreiknings á skólasóknareinkunn. Læknisvottorð verður að skila innan fimm daga eftir að veikindum lýkur. Leyfi er veitt til dæmis vegna:

    tíma hjá sjúkraþjálfara prófa í framhaldsskóla

Leyfi er ekki veitt fyrir utanlandsferðir nema í sérstökum tilfellum. Skólasóknareinkunn er gefin eftir að tekið hefur verið tillit til veikinda og/eða leyfa:

Mæting undir 80%: nemandinn er fallinn og fær ekki að þreyta próf nema í undantekningartilfellum. Fall í áfanga: Nemandi telst fallinn í áfanga ef hann/hún:

    1. nær ekki lágmarkseinkunn 2. uppfyllir ekki mætingaskyldur 3. hættir í áfanganum eftir að frestur er útrunninn. 4. er vísað úr áfanganum eða skólanum

Nemendur sem falla hafa heimild til að taka áfanganum einu sinni aftur.