Rík áhersla er lögð á að nemendur mæti stundvíslega í allar kennslustundir. Nemendur verða að ætla sér góðan tíma til fataskipta, hárgreiðslu, (þ.e. að greiða hárið vel frá andliti og í hnút í hnakka þar sem því verður við komið) og til upphitunar. Nemandi sem er tíu mínútum eða meira of seinn í kennslustund tekur ekki þátt í henni heldur horfir á. Nemendum ber að ganga vel um húsnæði skólans, sýna tillitsemi, gæta vel að fatnaði sínum og öðrum eigum. Úr, skartgripi, peninga og þ.h. ber að taka með sér inn í æfingasal þar sem skólinn tekur ekki ábyrgð á eigum nemenda. Algerlega er bannað að vera með sælgæti og tyggigúmmí í skólanum.Í grunnskóladeild eiga stúlkur á 1. – 3. stigi að klæðast bleikum ermalausum bolum, bleikum sokkabuxum og hvítum æfingaskóm. Stúlkur á 4. – 7. stig klæðast vínrauðum ermalausum bolum, bleikum sokkabuxum og hvítum æfingaskóm og einnig þurfa þær að eiga táskó.Í modern-, jass- og spunatímum klæðast þær að auki í svartar þykkar sokkabuxur án leista. Piltar klæðast hvítum stuttermabolum, svörtum þykkum sokkabuxum og hvítum æfingaskóm. Hægt er að fá lánaða karakter skó í skólanum.Í framhaldsdeild eiga stúlkur að vera í svörtum bolum, bleikum sokkabuxum, hvítum eða bleikum skóm og bleikum táskóm, og stutt pils eru í repertoire tímum. Í modern-, jass- og spunatímum klæðast þær í svartar þykkar sokkabuxur án leista. Piltar klæðast hvítum bolum, svörtum sokkabuxum eða æfingabuxum og hvítum skóm.Fjarveru þarf að tilkynna í síma 588-9188 áður en tími hefst. Veikindi þarf að tilkynna hvert skipti. Athuga að mæting á æfingum fyrir vor sýningu er sérstaklega mikilvæg. Reynt er að hafa opna tíma einu sinni til tvisvar á ári, þar sem allir aðstandendur eru velkomnir, en annars er gestum ekki leyft að koma inn í sal. Til þess að nemandi geti tekið próf í lok hvers misseris þá verða skólagjöld hans að hafa vera greidd til fulls. Einnig þarf mæting nemanda að vera minnst 80%
Réttindi og skyldur
Réttindi og skyldur skóla og nemenda um meðferð mála sem upp kunna að koma:
-
Í meðferð mála skal leitast við að leysa ágreiningsmál innan skólans. Ferli máls og gögnum er haldið til haga þegar ágreiningur kemur upp innan skólans. Skólastjóri setur reglur um hvernig bregðast skuli við ágreiningi, meðal annars um niðurstöður námsmats og prófa. Við meðferð mála skal sérstaklega gæta ákvæða laga nr. 121/1989, um skráningu og meðferð persónuupplýsinga og upplýsingalaga, nr. 50/1996.
-
Telji nemandi eða foreldrar/forráðamenn nemanda yngri en 18 ára, að brotið hafi verið á rétti hans, sbr. skólareglur, þannig að ástæða sé til að bera fram kvörtun skulu þeir snúa sér til viðkomandi kennara. Takist ekki að leysa málið tekur skólastjóri það til umfjöllunar og ákvarðar um viðbrögð.