Listdansskóli Íslands er í eigu Dansmenntar ehf og er stjórnin skipuð Gunnari Jóhanni Birgissyni og Jónu Finnsdóttur. Hjálmar Ragnarsson er varamaður.
Í Listdansskóla Íslands er listdansnámi skipt í 10 samliggjandi stig: 7 stig á grunnsskólastigi (9-15 ára) og 3 stig á framhaldskólastigi (16 ára og uppúr). Hvert stig tekur eitt ár. Skólaárinu er skipt í haust- og vorönn og kennsla hefst á sama tíma og kennsla í grunn- og framhaldsskólum ár hvert. Kennsluvikur eru 36 á ári. Aðalnámsgreinar skólans eru samkvæmt kröfum aðalnámskrár menntamálaráðuneytisins á grunn- og framhaldsstigi: klassískur ballett, táskór, repertoire, pas de deux, nútímalistdans, spuni og snertispuni, jass (funk, hiphop, söngleikjadans), karakter, danssmíði, kóreografía, composition. Strákar í grunnskóladeild fá sérstaka strákatíma einu sinni í viku.
Hlutverk skólans Nám í Listdansskóla Íslands hefur fyrst og fremst það markmið að mennta framtíðarlistdansara og nemendur sem vilja halda námi áfram á háskólastigi en mikilvægt er að þjálfa einnig nemendur sem stunda nám sér til ánægju. Nemendum er veitt kennsla í tæknilegum og listrænum greinum, skapandi færni og þeir fá tækifæri til að njóta sín á danssýningum. Nemendur fá þjálfun í sjálfstæðum og skapandi vinnubrögðum og líka í samvinnu með öðrum. Nemendur læra einnig að njóta lista, menningar og sögu listdansins í gegnum námi. Listdansskólinn veitir nemendum aðstoð sem hyggjast halda áfram námi hérlendis eða erlendis eftir lok framhaldsskólastiga.
Skólastjóri er Lára Stefánsdóttir - lara@listdans.is