Inntökupróf er þreytt fyrir 1. stig grunnskólanám í vor og aftur í haust. Mælt er með að nemandi sé ekki yngri en 9 ára að aldri. Inntökupróf fyrir nemendur samanstendur af líkamlegu stöðumati og náttúrulegri samhæfingu hreyfinga. Hreyfileg færni nemendans til að taka framförum í dansi er metin í prófinu. Dómarar skipa skólastjóri og kennarar við skólanum.Inntökupróf eru líka í boði fyrir grunnskólanemendur sem hafa stundað listdanssnám áður. Prófið samanstendur af líkamlegu stöðumati og samhæfingu hreyfinga í prúfutíma en krafist er að nemandi hafi lokið sambærilegu námi undanfara þess áfanga sem sótt er um samkvæmt aðalnámskrá. Inntökupróf í framhaldsdeild samanstendur af klassískum og nútímadanstímum, spunatíma og líkamlegu stöðumati. Markmiðið er að velja nemendur á forsendu hæfileika, færni og möguleikum til framfara. Eftirfarandi atriði eru metin: líkamlegir burðir, tónflæði í hreyfingum, náttúruleg/eiginleg samhæfing hreyfinga, tilfinning fyrir formi og stíl, túlkun, sköpunarhæfileiki, getu til að muna samsetningar sem og vilja og þrautseigju og andlegt úthald.
Innritun og skólagjöld
Innritun í Listdansskóla Íslands fer fram á haustin ár hvert. Nemendur geta skráð sig rafrænt, sjá "Rafræn skráning", einnig á skrifstofu skólans við Engjateigi 1, í síma 588-9188. Allir nemendur á 1.-5. stigi eru skráðir í 100% nám. Frá og með 6. stigi er hægt að skrá nemanda í 100% eða 50% nám. Skólagjöld greiðast fyrir hverja önn. Sendur er út gíróseðill fyrir haustönn í september ár hvert. Veittur er systkinaafsláttur.
Skólagjöld við Listdansskóla Íslands 2010-2011
-stjórn skólans hefur ákveðið að hækka skólagjöld í samræmi við hækkun á neysluvísitölu milli febrúar 2009 og febrúar 2010 eða um 7,3%
Framhaldsstig
16-20 ára – (fæðingarár 1994 eða fyrr)
Full skólagjöld eru kr. 111.000 eða 55.500- á önn
Systkinaafsláttur: fyrsta barn greiðir full skólagjöld en systkinin 70% - kr.77.700 alls / eða 38.850 - á hvorri önn.
Grunnskólastig
10-15 ára - (börn fædd 1995-2000)
Full skólagjöld eru kr. 88.800 eða kr. 44.400,- á hvorri önn.
Sysktinaafsláttur: fyrsta barn greiðir full skólagjöld en systkinin 70% - kr. 62.160 alls / eða kr. 31.080 .- á hvorri önn.
9 ára - (börn fædd 2001).
Full skólagjöld eru kr. 76.700.- eða kr. 38.350.- á hvorri önn.
Systkinaafsláttur: fyrsta barn greiðir full skólagjöld en systkinin 70% - 53.690 alls / eða kr. 26.845.- á hvorri önn.